Til í kellingarnar???

Þetta er síða saumaklúbbs dauðans...en hann samanstendur af 5 stelpum úr 6-X hinum ógurlega og hinni undurfögru Hrund...... njótið.....

Heimasíðurnar okkar

erla perla
viktoría beckham
ágústa beibí
lísa skvísa
dröfn superbabe
hrund sæta
Zha World Trip


Skólafélögin okkar

technis
vélin
fnis
viska
orator

gamalt efni

miðvikudagur, janúar 28, 2004

hey galz...
takk fyrir góðan saumó á mánudaginn og sérstaklega takk fyrir góðan mat hrund... ´
nú get ég nú farið að bjóða ykkur til mín.. komin með tvo voða kósý sófa og allt orðið voða heimilislegt í sveitinni.... þá er bara spurningin.. hvernig saumó viljið þið næst.... kósý í miðri viku eða djamm um helgi????

föstudagur, janúar 23, 2004

jamm ágústa til hamingju með ferðina, sjáumst annars hressar á mánudaginn:)
Kveðja,
Viktoría

fimmtudagur, janúar 22, 2004

sælar gellur...
hlakka til að sjá ykkur á mánudaginn :)
ágústa, til hamingju með ferðina, ekkert smá heppin.. sæt myndin af þér í mogganum og skamm fyrir að láta ekki vita að þú værir byrjuð að blogga aftur!! hehe....

miðvikudagur, janúar 21, 2004

sælar gellur..
mér líst líka vel á mánudaginn... c";)

sunnudagur, janúar 18, 2004

hellú girls
héðan er allt gott að frétta.....hvernig fannst ykkur idolið??? ég er sammála hrund ég var mjög sátt við kalla í fyrsta sætið:) ég fór í partý til guðbjargar eftir vísó og vorum við þar þangað til ég fór í tollarapartý eftir idol...það var mjög gaman en ég dreif mig heim um 3 því veðrið var horrable og ég nennti ekki niður í bæ! annars er ég bara að reyna að koma mér í gírinn til að a) fara að læra b) fara að hreyfa mig...það er víst sama hvað ég reyni með bæði ég finn alltaf eitthvað annað að gera:( ég kíkti í bíó í gær á uptown girls...hún var allt í lagi...ekkert spes mæli með henni á vídjó...síðan langar mig smá til að sjá mona lisa smile..hefur einhver heyrt eitthvað um hana....en allveganna síðan mæli ég me myndinni down with love ... hún er æðisleg:)
jæja skvísur verðum í bandi með einhvern hitting:)

fimmtudagur, janúar 15, 2004

jelló galz..

sá þennan link á batman.is og hugsaði beint til drafnar... hehe ;)

hvað er annars að frétta af ykkur?? skólinn byrjaður á fullu og svona... ég er einmitt með stundatöflu dauðans fram í miðjan febrúar þar sem ég er í tímum alla virka daga kl. 16 - 18:30 :S, byrja samt alltaf kl. 8:15 og er þá yfirleitt í eyðu einhvern tímann yfir daginn... gaman gaman....

annars er fyrsta vísindaferðin á föstudaginn, erum að fara í orkuveituna, svo verður væntanlega horft á idol e-s staðar og tjúttað soldið... endilega verið í bandi ef þið eruð á leiðinni á tjúttið c";)

föstudagur, janúar 09, 2004

hellú stúlkur!
Slæmar fréttir: ég er orðin lasin...ég er með höfuðverk, hálsbólgu, nefrennsli og beinverki:( ég vona að ég verði orðin góð á morgun en ef ekki þá treysti ég mér eiginlega ekki í sumarbústað og var að pæla hvort við gætum þá ekki hisst hérna í bænum - var það ekki hægt hjá dröfn? en allaveganna við verðum í bandi á morgun varðandi þetta!

uhhmmm já... ekki fitandi.. hehe... doritos rétturinn er reyndar soldið fitandi sökum ostasósunnar en allt annað er mjög hollt og gott :D, en já það er ómissandi að hafa hrísgrjón, salat, sýrðan rjóma & guacamole með réttinum og kannski soldið gott að hafa hvítlauksbrauð ef þið viljið......

líst voða vel á að fara til lísu að versla, hvenær viljið þið fara gellur?? allavega ekki of snemma..... daddara....

var að koma af In the Cut og já.... mest sækó mynd sem ég hef séð lengi.. við dottuðum báðar, það var ekkert hlé og okkur fannst hún ekkert voðalega spennandi... en meg ryan var nú sýnd á brjóstunum og já svo sást meira að segja typpi í myndinni, fær sko plús fyrir það... hehe... en s.s. mjög erótísk mynd en ekki nógu spennandi, fannst vanta alveg uppá persónusköpun... en anyways EKKI fara á hana, hefði ekki viljað borgað fyrir að sjá hana!!!

fimmtudagur, janúar 08, 2004

pása í drykkju er tvíþætt: spara og megrun:) ég er til í að fara að versla með ykkur á lau líka, eigum við ekki bara ákveða þá hvað við fáum okkur....er ofn í bústaðnum...upp á réttinn...þarf ekki annars ofn'???? ég er alveg til í að prófa eitthvað nýtt við höfum svo oft verið með taco en ég fylgi bara fjöldanum:) ef við erum með kjúllaréttinn þurfum við ekki líka að vera með brauð, hrísgrjón og salat....hey mér fannst líka kjúllinn hennar ágústu ógeðlsega góður....þannig girls speka up

við erum alveg magnaðar ágústa... ég var einmitt að taka eftir þessu... en mér líst vel á þú komið með að verzla.. vilja fleiri koma með??? lísa fær að vita á laugardag hvort hún þurfi að vinna eða ekki og annars var dröfn búin að segja að við gætum verið heima hjá henni..... c";)

hey... panta fara með vikkí í bíl.. :D annars gæti ég líka alveg farið á bíl en voða gott að sleppa við það þar sem ég er með svona rekstarleigu og má bara keyra eitthvað ákveðið á tímabilinu...

en með matinn þá var ég að spá hvort við ættum ekki að verzla í hann bara á laugardaginn?? ég get alveg farið... hver vill koma með??? en endilega kommentið á hvað þið viljið borða.... kannski orðið soldið dýrt ef við höfum bæði doritos réttinn & taco...

ég er annars á leiðinni í bíó á In the Cut með Meg Ryan... vann miða á e-a femin.is boðssýningu. Hilmar Örn sem samdi tónlistina í Englum Alheimsins semur einmitt tónlistina í myndinni... let you know how it is l8er....

viktoría... ekki alveg missa þig í megruninni.... ekkert nammi og engin drykkja... tsss... don't like that at all!!! verður nú að taka þér einn "frídag" í viku... mér finnst það c";)

nammi nammi nammi
verst að ég er í megrun þannig það er ekkert nammi fyrir mig - malasía 2004 átakið er byrjað...ekkert nema kál og magaæfingar fyrir mig...ég er mjög brött..byrjaði sl. mánudag og er þess vegna í pásu frá drykkju bara svo þið vitið það og ég nenni ekki að hlusta á neitt múður:)...mér líst þræl vel á kjúllauppskriftina en ég er líka alveg til í að toppa það og hafa líka taco með.....hvernig líst ykkur á það...svona buffey.......annars er ég bara að deyja úr kvefi og höfuðverk vona að það lagist......síðan er mar bara í fjárhagsáhyggjum dauðans út af malasíuferðinni okkar....en það reddast....visa skvisa reddar því ekki satt????
Síðan er ég enn að bagsast í hvaða kúrsa ég að fara í svona...æ þetta reddast nenni ekki að pæla í þessu...annars kíkti ég í bíó um daginn fór á honey...mér fannst hún í slappari kantinum sérstaklega þegar maður er nýbúin að sjá love actually:) sem er æði...ps ég get farið á bíl ef fólk er til í að borga aðeins í bensín:)

by the way... ef þið vitið um einhvern sem vantar að losna við sófa, sófasett eða eitthvað þvíumlíkt þá væri það vel þegið... íbúðin mín er nú annars öll að koma til... komin með sófaborð og sjónvarpið mitt er farið að virka.. ein í vinnunni hjá mér er svo mikill snillingur að hún lét mig fá þetta fína glerborð, lítið borð til að hafa inn í svefnherbergi og svo átti hún sjónvarpsfjarstýringu sem virkaði á mitt og því gat ég loks stillt inn stöðvarnar, fékk sko sjónvarpið frá bróður mínum og upprunalega fjarstýringin var týnd svo ég gat ekki leitað að stöðvum.. en vei vei.. allt komið í lag núna c";)

þá er það eina sem vantar er huggulegur sófi og þá get ég loks boðið ykkur í saumó & kannski innflutningspartý.....

en jæja ætli það sé ekki best að skella sér í sturtu og svo í háttinn, fyrsti skóladagurinn á morgun & nýnemakynningar... jibbidí... en endilega kommentið á matinn og já... væruð voða sætar ef þið gætuð spurst fyrir um sófa fyrir erlu perlu :D

hei galz... hvernig líst ykkur á þessa uppskrift sem ég & hrund köllum kjúklingaréttinn okkar... hann er algjör snilld... getum líka bara keypt tilbúinn kjúkling í nóatúni í staðinn fyrir bringurnar eins og segir í uppskriftinni (erla húsmóðir talar... hehe)...

ef ykkur líst ekki nógu vel á þessa eru líka fleiri góðar uppskriftir á þessum vef....

miðvikudagur, janúar 07, 2004

hæ hæ skvísur!!!!
Ég er til í hvað sem er hvort sem það er bara hittingur á lau eða sumarbústaður á lau....við skulum allaveganna taka kvöldið frá í eitthvað!!!!! ég veit að lísa á blautt party og co....sem verður að taka með.......annars ætlaði ég að spurja hvort þið vilduð koma að æfa með mér magadans í kramhúsinu, byrjar í næstu viku er á mán og mið frá 18:30-19:40 í sex vikur og kostar 13.800 kr....væri gaman að hafa ykkur:)
jepp látið síðan bara í ykkur heyra

bletzaðar....
ef við ætlum hvort sem er að hittast, elda saman, spila og djúsa soldið þá er ekkert mál mín vegna þó bústaðamál skýrist ekki fyrr en á laugardag... þetta er hvort sem er svo stutt frá bænum & eina sem maður þyrfti þá að hafa til auka væri bara pajamas, tannbursti & svefnpoki c";)

mér finnst að við ættum allavega að slá á fast hitting og byrja að plana..... td. hvað við ætlum að elda og svona..... jummmmyyy.... strax farið að hlakka til... en endilega galz látið heyra í ykkur hvað ykkur finnst ?????

eigið þið ekki einhver sniðug spil.. ég á fimbulfamb, veit að lísa á partý & co......

laugardagur, janúar 03, 2004

sælar gellur... og gleðilegt árið c";)

mér líst voðalega vel á sumarbústað næstu helgi, minnir að eitthvað hafi verið talað um laugardagskvöldið... eru ekki örugglega ekki allar lausar þá??

lísa ætlaðir þú ekki að reyna að redda fyrir okkur bústað....????

endilega verið í bandi svo við getum sláð þessu á fast... vei vei