|
Til í kellingarnar???
Heimasíðurnar okkar viktoría beckham ágústa beibí lísa skvísa dröfn superbabe hrund sæta Zha World Trip Skólafélögin okkar vélin fnis viska orator gamalt efni |
fimmtudagur, febrúar 26, 2004 mér líst vel á það, ég er til í hvað sem er nema eiginlega djamm;) miðvikudagur, febrúar 25, 2004 hei gellur hvernig líst ykkur á nýja lookið... hitt var orðið alveg vonlaust ... allur bakgrunnur týndur og allt saman ;) svo ég ákvað að setja eitthað væmið í staðinn.. hehe.....
annars eru ágústa & lísa þær einu sem eiga eftir að kommenta á laugardaginn... shame on you... mánudagur, febrúar 23, 2004 jeeeeiii líst vel á það... góð mynd og nammi... mmmm..... hvað segið þið hinar gellurnar???
með viðtalið þá er sú eina sem ég hef heyrt um, það er hún hafdís, sá á blogginu hennar að hún væri að fara á miðvikudaginn...... hellú gals,
ég er búin að sjá down with love og hún er ÆÐI, ég er sko alveg til í að sjá hana aftur og mér líst vel á laugardagskvöldið.....ef enginn annar vill getum við bara verið tvær erla!!!!! látið í ykkur heyra!!!! hafið þið annars heyrt af einhverjum öðrum stelpum sem hafa verið að fá viðtal..... hey galz... mér líst alveg vel á hitting næstu helgi... en ég er að fara í vísindaferð á föstudaginn svo það er spurning hvor þið viljið hittast á laugardaginn... væri kannski gaman að horfa á einhverja stelpumynd saman og góðu chilli... ég á td. eftir að sjá down with love... grrr... ewan mcgregor.... grrr... hvernig líst ykkur á það....??? við getum alveg verið hér ef þið viljið.... en endilega verðið bara in touch hvað þið viljið gera....
sunnudagur, febrúar 22, 2004 hey girlies
gekk bara vel, er að fara í viðtal á þriðjudaginn.....dröfn fékk líka viðtal og hún fer á morgun....þannig bara whish us luck;) annars þurfum við að fara að hittast bráðlega, hver er til í eitthvað rólegt næstu helgi...spjall og sonna??????? mánudagur, febrúar 16, 2004 nákvæmlega... heyr heyr hrund c";)
ég var ótrúlega dugleg og djammaði ekkert um helgina, reyndar tók ég það út á fimmtudaginn hehe & svo er ég að fara í próf á eftir í vegagerðinni og þá getur lífið loks orðið eðlilegt á ný en ekki skóli fram eftir öllu eins og þetta hefur verið frá áramótum... merkilegt hvað maður segir samt oft "æ, ég redda þessu eftir vegagerðina.." ég er búin að segja þetta svo oft að ég man ekki helminginn af því sem ég ætlaði að gera eftir vegagerð.... en hvað segið þið gellur, ekkert að gerast... ekkert slúður?? miðvikudagur, febrúar 04, 2004 jæja stúlkur..
það er nú meira hvað þið eruð dræmar.... anyways... ég & hrund ætlum allavega að borða eitthvað gott saman, síðan ætla ríta og vinkona hennar að kíkja til okkar og við ætlum að skella okkur á djammið.... ef þið viljið koma eruð þið velkomnar og endilega látið vita ef þið viljið borða með okkur..... c";) þriðjudagur, febrúar 03, 2004 ég er til í laugardaginn en ég mun eigi smakka áfengi þar sem ég þarf að læra massa mikið um helgina........
adios viktoría mánudagur, febrúar 02, 2004 hello galz...
með næsta hitting þá var ég að pæla hvort þið væruð lausar næsta laugardagskvöld???? var að hugsa um að reyna að elda eitthvað gott fyrir okkur og svo myndum við kannski fá okkur smá í glas, spila og kíkja aðeins á tjúttið saman... how do you like that idea.....??? málið er það að ég er alltaf svo lengi í skólanum á virkum dögum... (aldrei búin fyrr en hálf sjö) og þannig verður þetta alveg fram í miðjan febrúar og ég nenni ekki að bíða svo lengi með að bjóða ykkur í heimsókn.... endilega látið mig vita hvernig ykkur líst á planið... ps. ágústa & dröfn... þið megið alveg taka kallana ykkar með ef þið viljið c";) og já.. ég er komin með nýja heimasíðu ...:::tjékk it át:::... |